Framkvæmdagleði

Það stendur til að helluleggja allar gangstéttir við Völusteinsstræti í sumar og af því tilefni ákvað ég að nota tækifærið og taka lóðina hjá mér í gegn. Þegar ég keypti hús númer 13 við götuna í fyrra sá ég strax að það þyrfti að taka til hendinni í garðinum. Þar sem ég á ættir mínar að rekja til manna sem eru þekktir fyrir hafa snyrtilegt og fallegt í kringum sig get ég ekki hugsað mér að vera eftirbátur þeirra á því sviði.

Nú eru hafnar framkvæmdir hjá mér, búið er að rífa niður steypta girðingarveggi sem voru fyrir framan og til hliðar við húsið. Stétt sem var bakvið húsið er líka horfin, sem og snúrustaurar og fúinn sólpallur sem var greinilega kominn til ára sinna. Í dag verður lokið við að slétta undirlag lóðarinnar og í framhaldinu kemur nýr jarðvegur áður en torf verður lagt yfir allt saman. Þá verður bílastæðið stækkað og hellulagt og það kemur ný stétt frá götunni að húsinu. Síðar kemur sólpallurinn og einhver blómabeð svo eitthvað sé nefnt.

Þegar ég fór í vinnuna í morgun var unnið á fullu í lóðinni eins og þessi mynd ber með sér.

v13


Þeir fiska sem róa

Bæjarráð Bolungarvíkur fundaði með tveimur ráðherrum, Einari K Guðfinnssyni og Össuri Skarphéðinssyni, í Kjallaranum í Einarshúsi í dag. Bæjarstjórinn var að vísu fjarri góðu gamni því hann skellti sér á handfæraveiðar á þessum sólríka sumardegi. Hann missti fyrir vikið af ljúffengri gúllassúpu að hætti bolvískra húsmæðra. Fjarvera bæjarstjórans varð þó til þess að ég gat látið ljós mitt skína á fundinum. Við Anna og Gunnar ræddum ýmis framfaramál við ráðherrana tvo og vonandi verður uppskera fundarins góð og Bolvíkingum til heilla. Ekki veit ég hvort það fiskaðist vel á færin í dag en ég veit að það sama á við í sjómennskunni og pólitíkinni að þeir fiska sem róa.

Ódrengilegir Svíar

Leikmenn sænska landsliðsins í fótbolta fá líklega ekki verðlaun fyrir háttvísi (Fair Play) á knattspyrnuvellinum eftir framkomu þeirra í landsleiknum við Íslendinga í gær. Undanfarinn að fimmta marki Svía í leiknum var ansi sérstakur og var atburðarrásin eitthvað á þessa leið:

Varnarmaður Íslendinga vinnur boltann í eigin vítateig en fær boltann í hendina. Sænsku leikmennirnar heimta vítaspyrnu og svo virðist sem dómarinn bendi á vítapunktinn til merkis um að víti hafi verið dæmt. Leikmenn beggja liða sjá það og varnarmaður íslenska liðsins sendir boltann laust í áttina að vítapunktinum. Boltinn hrekkur fyrir fætur sænsks leikmanns sem sendir hann á samherja sinn sem er staðsettur fyrir framan mark Íslendinga. Sá leikmaður sendir boltann auðveldlega í netið hjá Íslendingum sem reyndu ekki með neinum hætti að stöðva þessa "sóknartilburði" Svíanna. Niðurstaðan var að fimmta mark Svía gegn Íslendingum leit dagsins ljós.

Þegar ég sá upptökuna af þessu Svíamarki rifjaðist upp fyrir mér atvik sem átti sér stað í leik hjá enska knattspyrnufélaginu West Ham fyrir nokkrum árum. Þar sýndi Paulo Di Canio mikinn drengskap með því að stoppa leik - þrátt fyrir að vera í upplögðu marktækifæri - vegna þess að hann sá að markvörður andstæðinganna lá meiddur í grasinu. Di Canio hefði auðveldlega geta skorað mark og fagnað ógurlega líkt og Svíarnir gerðu í gær en hann var maður að meiri og stöðvaði sjálfur leikinn því hann taldi það ekki í anda knattspyrnunnar að notfæra sér meiðsli markvarðarins.

Það má vel vera að íslenska liðið hafi spilað illa í gær og átt niðurlægingu skilið en sú framkoma Svía að notfæra sér það að Íslengingar töldu að leikurinn hafði verið stöðvaður var afar ódrengileg og þeim sjálfum til minnkunar.

 


Hin döpru vísindi

Hagfræðin var hér áður fyrr kölluð "hin döpru vísindi". Í dag má segja að fiskifræðin hafi tekið við þessum fráhrindandi titli. Á hverju vori bíða Íslendingar eftir enn einni "svörtu skýrslunni" frá Hafrannsóknarstofnun þar sem okkur er sagt að það þurfi að draga stórkostlega úr veiðum til að forðast hrun þorskstofnsins. Okkur hefur verið seld sú hugmynd að það eina sem skili okkur betri tíð til frambúðar sé að herða sultarólina enn frekar. Slíkt er kallað ábyrg fiskveiðistjórnun. Það hvarflar ekki að sérfræðingunum að ólin sé nú þegar of fast hert og að lausnina sé e.t.v. að finna í því að losa um og auka sóknina í þorskstofninn.

Það var mannfjöldakenning hagfræðingsins Malthusar og svartsýn lífsskoðun hans sem varð til þess að hagfræðin fékk á sig stimpilinn "hin döpru vísindi". Mannfjöldakenningin gekk út á fólkfjölgun væru verulegar skorður settar og að "lestir og eymd" takmarki mannfjölda að fæðuframboði. Á grundvelli þessarar kenningar var því m.a. haldið fram að Ísland gæti einungis brauðfætt 50 þúsund manns. Þetta mun hafa verið almenn skoðun erlendra sem innlendra fyrirmanna fyrir um 200 árum síðan. Nú eru Íslendingar rúmlega 300 þúsund talsins og löngu ljóst að sérfræðingar þess tíma höfðu rangt fyrir sér.

Ég hef áhyggjur af því að fiskifræðin standi á veikum grunni í dag. Hingað til hefur verið talið að í lagi sé að veiða árlega 25% af mældum þorskstofni á Íslandsmiðum en nú breytast vísindin allt í einu þannig að einungis er talið að veiða megi 20% af stofninum. Við slíkar breytingar er eðlilegt að líta hlutina gagnrýnum augum og spyrja: Getur ekki alveg eins verið í lagi að veiða 30% af stofninum? Eða eru 15% kannski nærri lagi? Á hverju grundvallast þetta mat eiginlega?

Ég vildi ekki standa í sporum fiskifræðinga í dag. Mér finnst eins og þeir standi frammi fyrir því að kenningarnar sem þeir starfa eftir ganga ekki upp - líkt og raunin varð með mannfjöldakenningu Malthusar á sínum tíma.

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, lét eftirfarandi orð falla á Alþingi í vor: "Drengir, sjáiði ekki veisluna!" Ég sé veisluna en sérfræðingarnir á Hafró sjá hana greinilega ekki.


Stærðfræði

Það þykir eflaust mjög nördalegt að taka þátt í keppni þar sem færni í stærðfræði ræður úrslitum. Á mínum yngri árum þótti ég frekar sterkur í stærðfræðinni og tók m.a. þátt í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna og komst þar í úrslit eitt árið. Ég var og er afskaplega stoltur af þessum árangri en því miður dofnaði áhuginn á stærðfræðinni með árunum.

Þegar ég fletti Mogganum í dag fylltist ég stolti því þar sá ég frétt um góðan árangur nemenda í Digranesskóla í norrænni stærðfræðikeppni grunnskólabarna en með fréttinni fylgdi mynd af bróðurdóttur minni, Fríði Halldórsdóttur, sem var ein þeirra sem tók þátt í keppninni. Það sem vakti hvað mesta athygli í verkefni 9. E í Digranesskóla var að þau komust að því að það þarf 100 (80 ára gömul og 23 metra há) eikartré til að búa til parket fyrir íþróttahús sem er 42 x 42 metrar að stærð. 

Þegar Fríður var spurð að því hverju hún þakkaði árangurinn í keppninni var hún með svarið á hreinu - góður stærðfræðikennari gerði gæfumuninn. Það verður seint efast um mikilvægi góðrar stærðfræðikennslu í skólum landsins, ég þekki það af eigin raun að færni í stærðfræði opnar dyrnar að endalausum möguleikum í námi og starfi.


Birgir Leifur á Syðridalsvelli?

Fréttavefurinn bb.is birti í dag frétt um að kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hefði leikið á 73 höggum á opna welska meistaramótinu í golfi. Með fréttinni fylgdi mynd af kylfingi sem er að undirbúa teighögg á 1. braut Syðridalsvallar í Bolungarvík. En myndin er ekki af Birgi Leifi Hafþórssyni atvinnukylfingi frá Akranesi heldur er þarna um að ræða Bolvíkinginn Birgi Olgeirsson. Kannski eru þetta mistök af hálfu blaðamanna bb.is en mér finnst þetta bara merki um góðan húmor hjá þessum ágæta fréttavef.

birgir-leifur-olgeirsson


Holtastígur

Ég fór á fína tónleika með Jóni Ólafssyni í Víkurbæ í kvöld. Þar flutti Jón mörg af sínum bestu lögum, m.a. þau sem eru á nýju plötunni hans sem heitir "Hagamelur". Jón sagði nafngiftina á plötunni vera þannig til komna að hann býr við Hagamel og hún er tekin upp í hljóðveri við Hagamel. Bítlarnir gáfu einnig út plötu sem nefnd var eftir götunni þar sem hljóðverið var en sú plata heitir "Abbey Road" eftir samnefndri götu í Liverpool.

Fyrir rúmlega 4 árum síðan setti ég saman 7 laga geisladisk með eigin lögum en gat aldrei fundið neitt gáfulegt nafn á hann - líklega hefði ég átt að gefa honum nafnið "Holtastígur". Næsti diskur gæti í framhaldinu fengið nafnið "Völusteinsstræti".


Leiðin til Aþenu

Liverpool og AC Milan eigast við í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Aþenu á morgun. Fyrir tveimur árum áttust sömu lið við í Istanbul og þá stóð Liverpool uppi sem sigurvegari í einum magnaðasta úrslitaleik sögunnar. AC Milan á nú harma að hefna og án efa verður hér um að ræða leik ársins í fótboltanum. Ég er ekkert alltof bjartsýnn fyrir leikinn en vona auðvitað að mínir menn í Liverpool fari með sigur af hólmi.


Innanbæjarkappakstur

Glugginn á skrifstofunni minni snýr að Aðalstræti í Bolungarvík þannig að ég verð var við margt sem gerist á þessari aðalgötu bæjarins. Í kvöld varð ég vitni að ofsaakstri tveggja ungra ökumanna sem voru í hreinum og klárum kappakstri eftir Aðalstrætinu. Óhætt er að segja að hraði beggja bílanna hafi verið yfir 100 km/klst og lögðu þeir undir sig báðar akreinar götunnar. Slíkur kappasktur er stórhættulegur og í mínum huga eiga þeir sem verða uppvísir að þess háttar brotum ekki skilið að hafa ökuréttindi - það hefði t.d. ekki þurft að spyrja að leikslokum ef að lítið barn hefði í gáleysi sínu elt bolta út á götuna....

Fyrsta golfmót sumarins

Það er komið að fyrsta golfmóti sumarins hér í Bolungarvík en Vormót Golfklúbbs Bolungarvíkur fer fram á Syðridalsvelli á sunnudaginn. Mér finnst vorið heldur kalt hér fyrir vestan enda er ég orðinn vanur því að spila golf í spænsku vorblíðunni. Á sunnudaginn verða leiknar 18 holur í Texas Scramble og það er aldrei að vita nema ég láti sjá mig þar ef ég fæ góðan meðspilara.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband