Best geymda leyndarmál Vestfjarða

Á sama tíma og stór hluti íslensku þjóðarinnar sat límdur fyrir framan Ríkissjónvarpið og fylgdist með íslenska laginu detta út úr forkeppni Eurovision söngvakeppninnar var öllu skemmtilegri dagskrá á Stöð 2. Þar var nefnilega hulunni svipt af best geymda leyndarmáli Vestfjarða.

Kosningasigur Sjálfstæðisflokksins

Sjálfstæðisflokkurinn er sigurvegari Alþingiskosninganna. Flokkurinn er áfram stærsti stjórnmálaflokkur landsins og bætir við sig 3% fylgi og 3 þingmönnum. Ríkisstjórnin hélt einnig velli en þó með minnsta möguleg mun, 32 þingmenn á móti 31 þingmanni stjórnarandstöðunnar. Sjálfstæðisflokkurinn á 1. þingmann í öllum kjördæmum og hefur yfir að ráða 25 af 63 þingsætum en sá flokkur sem kemur næst er Samfylkingin með 18 þingsæti.

Í mínu kjördæmi, Norðvesturkjördæmi, tapar Sjálfstæðisflokkurinn örlitlu fylgi en heldur sínum 3 mönnum og eru þeir allir kjördæmakjörnir. Jöfnunarsætið kom í hlut Frjálslynda flokksins og þar með er ljóst að Kristinn H Gunnarsson verður á þingi næstu 4 árin. Að mínu mati er Kristinn að vinna persónulegan sigur og sýnir framsóknarmönnum fram á að hann hafi tekið frá þeim töluvert fylgi og það sem mestu máli skiptir fyrir hann, tekið af þeim þingsæti.


Alþingiskosningar

Í dag er kosið til Alþingis. Þar kjósum við þá stjórnmálaflokka og um leið þá einstaklinga sem við teljum best til þess fallna að stýra íslensku þjóðarskútunni næstu fjögur árin. Ég er búinn að fara á kjörstað og kaus samkvæmt minni sannfæringu - ég kaus D-lista Sjálfstæðisflokksins.

Ég vona að sem flestir fari á kjörstað í dag og nýti sér þann lýðræðislega rétt að kjósa - eftir sinni sannfæringu.


Valkvíði

Ég hitti mann í gær sem sagðist vera haldinn "valkvíða" vegna kosninganna á morgun. Hann sagði að slíkur kvíði lýsti sér þannig að hann stæði frammi fyrir mörgum góðum valkostum en vissi ekki hvern hann ætti að velja. Þannig mætti líkja því að ganga að kjörborðinu á morgun við það að koma inn í Gamla bakaríið og þurfa að velja á milli allra kræsinganna þar. Ferðirnar í Gamla bakaríið enda alltaf á því að kringlurnar góðu eru keyptar - sama hvað annað freistandi er í boði. Þannig er þetta líka í kosningunum, ef okkur líkar sá flokkur sem við höfum áður kosið þá eru miklar líkur á að við kjósum hann aftur. Það er nefnilega auðveldara að halda sig við fyrra val en að breyta því.

Heima er best

Eftir gott frí á Spáni er ég aftur kominn heim í Víkina mína. Það er alltaf gott að koma heim úr fríi og það fylgir því alltaf góð tilfinning að sjá Bolungarvíkina birtast þegar keyrt er framhjá Óshólavitanum - það fer nefnilega um mann einhver sælustraumur sem sýnir hve góðar taugar maður hefur til heimabæjarins. Ég tók um 180 ljósmyndir í Spánarferðinni og munu einhverjar þeirra birtast hér á næstunni.

Það er stór helgi framundan, Alþingiskosningar og Eurovision á laugardag. Ég vona að úrslitin í báðum tilvikum verði Íslendingum hagstæð. Úrslitin í Eurovision eru í höndum annarra Evrópuþjóða en úrslit alþingiskosninganna eru í höndum íslensku þjóðarinnar. 


Islantilla: Dagur tíu

Það er farið að styttast í heimför hjá okkur hér á Islantilla. Síðasti golfdagurinn var í dag og að venju fór þá fram ÚÚ-mótið. Ég náði ekki að koma mér á verðlaunapall í þetta skiptið en það gengur bara betur næst.

Ég spilaði holur 1-18 í ÚÚ-mótinu í dag og fékk 10 punkta á 1-9 og 15 punkta á 10-18. Þetta er svo sem viðunandi árangur en ég hefði getað gert miklu betur. Eftir mótið spilaði ég holur 19-27 og fékk þá 17 punkta og var að spila mjög vel. Ánægðastur var ég að fá auðelt par á síðustu holunni og það besta veganestið sem ég gat fengið út í íslenska golfsumarið. Fyrir þá sem hafa áhuga á höggafjölda þá var ég með 54 högg á 1-9, 49 högg á 10-18 og 46 högg á 19-27.

Það kom berlega í ljós í dag að ég er orðinn nokkuð góður járnaspilari og voru mörg höggin mín með 4-járninu í dag algjörlega fullkomin. Ég þarf því ekki lengur að notast við bratartré, svo mikið er víst.

Á morgun höldum við heim á leið. Þessa dagana er 25-30 stiga hiti hér á Spáni en mér skilst að hitastigið sé þó nokkuð lægra heima á Íslandi, það verða því mikil viðbrigði að koma heim í kuldann.


Islantilla: Dagur níu

Ég spilaði á 100 höggum í dag. Eftir að hafa spilað holur 19-27 á 46 höggum var ég bjartsýnn á að mér tækist að spila vel á holum 1-9. Ég byrjaði reyndar á pari á 1. holu, fékk svo sprengju á 2. holu og skolla á 3. holu en var í tómu ruglu á 4. - 8. holu. Lauk þó hringnum með pari á 9. holu. Ég vona að ég hafi tekið út öll slæmu höggin í dag því það er stór dagur á morgun.

ÚÚ-mótið er á morgun en þar munum við leika holur 1-18 í punktakeppni. Ég á rástíma kl. 9.20 og verð þar í góðum hópi með Svenna, Gassa og Dodda. Ég geri ekki ráð fyrir að lenda á verðlaunapalli í þetta skiptið en vonast eftir að mótið verði skemmtilegt.

Þrátt fyri að skorið væri ekki upp á sitt besta í dag þá var ég að slá mjög vel. Næstum öll drævin voru þráðbein og löng og járnahöggin voru fín. Ég var að klikka á stutta spilinu og púttunum en ef það kemst í lag á morgun gæti ég gert góða hluti.


Islantilla: Dagur átta

Það eru rúm 20 ár síðan Íslendingar sendu Gleðibankann til leiks í Eurovison söngvakeppnina. Í gærkvöldi steig Helga Möller - sem var ein þriggja úr Icy hópnum - á svið hér á hótelbarnum á Islantilla og flutti Gleðibankann við mikinn fögnuð viðstaddra. Fleiri íslensk popplög fengu að fljóta með og má með sanni segja að það hafi verið íslensk sveitaballastemming á Islantilla fram eftir nóttu.

Eftir að hafa spilað vel í golfinu síðustu daga kom auðvitað einn slæmur dagur í gær. Texas Scramble leikurinn gekk ekki nógu vel og ég þarf ekkert að hafa áhyggjur af því að komast á verðlaunapall í þetta skiptið.

Þegar illa gengur er oft gott að fara á æfingasvæðið og reyna að finna taktinn aftur. Það gerði ég í gær með þeim árangri að síðustu 9 holurnar (10-18) fór ég á 45 höggum og fékk 4 pör, 3 skramba og 1 sprengju.

Í dag fengum við að sofa út en íslenski hópurinn á ekki rástíma fyrr en eftir hádegið. Það verða því aðeins leiknar 18 holur í dag og mun ég spila holur 1-9 og 19-27 að þessu sinni.


Islantilla: Dagur sjö

Dagurinn í dag var alveg magnaður og ég var að brillera í golfinu. Í morgunsárið héldum við yfir landamærin til Portúgal og tókum þar 18 holur á Quinta da Cima golfvellinum. Ég lék á 96 höggum - 72 með forgjöf - og fékk 36 punkta, þ.a. ég var alveg við það að lækka mig í forgjöf.

Quinta da Cima golfvöllurinn þykir erfiður sökum þess hve langur hann er en hann er þó frekar flatur þannig að hann er auðveldur yfirferðar. Þá eru óteljandi sandgryfjur á vellinum, líklega um 7-10 að meðaltali á hverri braut. Grínin eru með miklu landslagi auk þess að vera mjög hröð en mér finnst alltaf spennandi að spila við slíkar aðstæður.

Ég spilaði fyrri 9 holurnar á 49 höggum en hóf seinni 9 með miklum látum, fékk fyrst par, svo skolla og loks fugl á 12. holu sem er 450 metra löng par 5 hola. Þriðji fuglinn í ferðinni er sem sagt kominn í hús. Skorið á seinni 9 var 47 högg og hefði vel getað orðið lægra ef ég hefði ekki misst taktinn á síðustu þremur holunum.

Eftir frægðarförina til Portúgals voru leiknar 9 holur (10-18) hér á Islantilla. Mér gekk bölvanlega til að byrja með og var kominn með 22 högg eftir aðeins 3 holur. Síðustu 6 holurnar lék ég á 26 höggum (3 pör og 3 skollar) og endaði því á 48 höggum. Skorið er allt að batna hjá mér og gefur það mér góðar vonir fyrir golfsumarið á Íslandi.

Á morgun verður svokölluð "hjóna-, para- og hommakeppni" en þar verður leikinn hefðbundinn Texas Scramble. Að sjálfsögðu stefni ég á sigur á morgun og ætla að leggja mig allan fram til að svo geti orðið.

Að lokum get ég glatt ykkur með því að ég er loksins að taka einhvern lit hérna úti í sólinni. Liturinn er þó ekkert sérstaklega brúnn en ég get allavega sagt að bláa höndin sé heldur betur farin að roðna.


Islantilla: Dagur sex

Það ringdi á Islantilla í dag og var golfvöllurinn lokaður til hádegis. Þrátt fyrir að það stytti ekki strax upp var okkur hleypt á völlinn um eittleytið og lékum við holur 1-9 og 19-27. Ég náði því markmiði mínu að spila 18 holur á innan við 100 höggum og verð því að setja mér ný markmið fyrir næstu ferð.

Fyrstu 6 holurnar voru ansi blautar í dag en á 7. holu stytti loksins upp. Spilamennskan hjá mér var frekar óstöðug í dag enda aðstæður ekki upp á það besta en þó náði ég að spila á 98 höggum. Fyrri hringinn fór ég á 49 höggum og fékk þá 2 pör en seinni hringinn fór ég einnig á 49 höggum en var þá með 3 pör. Það var sem sagt enginn fugl hjá mér í dag þrátt fyrir nokkra sénsa.

Á morgun verður haldið til Portúgals og leikið á Quinta de Cima vellinum sem mun vera mjör erfiður og er rúmlega 6 km af gulum teigum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband