Víkari vikunnar

Að undanförnu hefur www.vikari.is tekið ákveðnum efnislegum breytingum. Eftir að ég réð Rögnu, Vert í Kjallaranum, til starfa við vefinn hefur mér gefist tækifæri til að láta nokkra af upphaflegu draumunum mínum rætast. Einn þeirra var að byrja með dagskrárliðinn "Víkari vikunnar" þar sem Víkarar - nær og fjær - eru spurðir nokkurra léttra spurninga. Víkari þessarar viku er Magnús Már Einarsson en á undan honum hafa Katrín Gunnarsdóttir, Finnbogi Sveinbjörnsson og Jens Þór Sigurðarson verið þess heiðurs aðnjótandi að vera "Víkari vikunnar". Ég vona að þessi nýbreytni falli lesendum www.vikari.is vel í geð en til gamans má geta þess að yfir 600 manns heimsækja vefinn dag hvern.

Ég á afmæli í dag

Það er komið sumar - samkvæmt dagatalinu. Þessi 31. afmælisdagur minn er þó ekkert sérstaklega sumarlegur, allt er orðið hvítt og norðaustanáttin í kaldara og hvassara lagi. Kuldalegt veðrið fékk mig til að kúra aðeins fram á morguninn en að lokum dreif ég mig á fætur til að geta tekist á við verkefni dagsins.

Afmælisdagurinn minn virðist alltaf hitta á annasaman tíma hjá mér, á skólaárunum var próflestur í hámarki í kringum 21. apríl en eftir að við tók nám í skóla lífsins hefur ætíð verið álagspunktur í vinnunni hjá mér á vorin. Það verður því líkt og áður lítið um hátíðarhöld hjá mér í tilefni afmælisdagsins. Á dagskránni í dag er þó fótbolti og matur hjá mömmu.

Ásgeir Þór á líka afmæli í dag, ég óska honum innilega til hamingju með fertugsafmælið.


Sægreifar fái 100 Óshlíðargöng

Það geta fáir toppað kosningaloforðið sem frambjóðandi Samfylkingarinnar gaf sægreifum þessa lands á opnum stjórnmálafundi í íþróttahúsinu á Torfnesi á þriðjudaginn. Þar lofaði Össur Skarphéðinsson þeim útgerðarmönnum sem eiga veiðiréttindi á Íslandsmiðum bótum sem nemur hundruðum milljarða króna.

Nánar til tekið var eftirfarandi spurning lögð fyrir Össur Skarphéðinsson, þingmann og frambjóðanda Samfylkingarinnar: "Hvers mega þær útgerðir vænta sem fjárfest hafa í kvóta fyrir stóra peninga á undanförnum árum ef þið komist til valda?" Svar Össurar var á þá leið að "engin réttindi verði tekin af neinum nema að bætur komi fyrir". Ef notaðar eru tölur frá Grétari Mar Jónssyni, frambjóðanda Frjálslynda flokksins, um verðmæti aflaheimilda nema væntanlegar bætur fyrir þorskkvótann einan og sér hátt í 500 milljörðum króna.

Það er því andvirði rúmlega 100 Óshlíðarganga sem kvótaeigendur munu fá frá skattgreiðendum þessa lands komist Samfylkingin til valda.


Vestfirskir sleikipinnar

Mér til mikillar ánægju hefur vefsvæði Vestfirskra sleikipinna loksins verið uppfært. Nýjasta færslan fjallar um mögulega aðkomu tveggja bolvískra fastagesta skemmtistaðarins Pravda að brunanum mikla í miðborg Reykjavíkur í gær.


Flashback: DJ Bobo

Á dögunum fékk ég þær fréttir að svissneski söngvarinn og plötusnúðurinn DJ Bobo myndi taka þátt í Eurovision söngvakeppninni fyrir hönd þjóðar sinnar í ár. Þetta voru gleðileg tíðindi þar sem DJ Bobo átti nokkra góða smelli á árunum 1993-1994 en á þeim tíma var DJ Bobo líklega á hátindi ferils sín. Ég get ekki sagt að lagið "Vampires Are Alive" heilli mig en gömlu lögin frá DJ Bobo vekja upp hjá mér góðar minningar.

Somebody Dance With Me var fyrsti smellur DJ Bobo og kom út árið 1993 en lagið er endurgerð á gamla Rockwell slagaranum Somebody's Wathcing Me. Lögin sem fylgdu í kjölfarið voru Keep On Dancing. Take Control og Everybody. Árið 1994 kom breiðskífan There Is A Party út og af henni nutu nokkuð lög vinsælda, þar á meðal voru titillagið There Is A Party, Love Is All Around, Let The Dream Come True og Freedom.

Hægt er að nálgast þessar klassísku eurodance perlur með því að smella á tenglana hér að ofan.


Atvinnulíf á Vestfjörðum

Þetta er hvorki í fyrsta né síðasta sinn sem ég tek atvinnulíf á Vestfjörðum til umfjöllunar. Fyrir tæpri viku síðan átti Vestfjarðanefndin svokallaða að skila af sér vinnu sinni til forsætisráðuneytisins en eins og flestir vita átti nefndin að koma með tillögur að leiðum til eflingar atvinnulífs á Vestfjörðum. Nefndinni bárust hátt í eitt hundrað tillögur sem áttu það sammerkt að geta bætt atvinnuástand á Vestfjörðum. Margir hafa því lagt hönd á plóg til að auðvelda nefndinni vinnu sína.

Líklega eru þær tillögur sem nefndinni bárust af ýmsum toga og má þar eflaust finna góð sóknarfæri fyrir atvinnulíf á Vestfjörðum. Eitt af því sem ég óttast er að þær hugmyndir sem eiga eftir að hljóta náð fyrir augum fólks verði óraunhæfar og óframkvæmanlegar. Okkur mannfólkinu hættir nefnilega til að gleyma okkur í eigin draumum. Sumar hugmyndir eru frumlegar og sniðugar en það er ekki endilega víst að þær séu hentugar. Ég vil raunhæfar lausnir - enga villta drauma.

Það er að mörgu að hyggja í þessum málum en að mínu mati þarf að huga vandlega að einu atriði, vinnumarkaðnum á Vestfjörðum. Mikið hefur verið rætt um að fjölga þurfi opinberum störfum á Vestfjörðum til jafns við aðra landsfjórðunga. Þá kviknar strax spurningin, hvernig störf á hið opinbera að bjóða á Vestfjörðum? Í mínum huga er svarið einfalt - störf fyrir venjulegt fólk. Við þurfum því að horfa til framboðs á vinnuafli á svæðinu því það þarf að bjóða upp á verkefni sem hinn almenni borgari getur leyst af hendi.


Islantilla 2007

Það eru ekki nema tæpar tvær vikur í að ég haldi í enn eina golfferðina til Islantilla sem er smábær í Andalúsíu á Spáni. Á síðustu þremur árum hef ég fimm sinnum sótt Islantilla heim og nú er ég að fara þangað í sjötta skiptið. Flestar ferðanna hafa verið farnar undir merkjum Svarta gengisins svokallaða sem er hópur vaskra bolvískra kylfinga.

Vorferðirnar til Islantilla eru alltaf mikið tilhlökkunarefni hjá meðlimum Svarta gengisins, ferðirnar eru iðulega pantaðar í nóvember og er þá strax byrjað að telja niður dagana til brottfarar. Fyrir kylfinga eru golfferðir mesta skemmtun sem hægt er að hugsa sér, þetta eru algjörar draumaferðir sem sérhver kylfingur ætti að leyfa sér að fara í einhvern tímann á lífsleiðinni.

Dæmigerður dagur á Islantilla hefst með morgunverði, að honum loknum er haldið á æfingasvæðið þar sem nokkrar fötur af boltum eru slegnar til að tryggja að sveiflan verði í lagi þegar haldið verður á fyrsta teig. Milli klukkan 9 og 10 á morgnana eru allir ræstir út á golfvöllinn og ræður þá oft tilviljun hverjir verða golffélagarnir yfir daginn. Eftir 18 holur er stefnan tekin á klúbbhúsið þar sem skorkortin eru yfirfarin og síðbúinn hádeigisverðir snæddur - sumir fá sér reyndar einn kaldan við þetta tækifæri og oftar en ekki drekka þá sigurvegarar dagsins á kostnað þeirra sem lutu í lægra haldi fyrir þeim. Við spilum alltaf 9 holur til viðbótar - stundum 18 - seinni partinn en að þeim loknum er haldið á hótelbarinn þar sem gengið er á gin-birgðir hótelsins. Næst á dagskrá er kvöldverðurinn en að honum loknum er kvöldinu svo varið á hótelbarnum þar sem spjallað er um golf auk þess sem íslensk lög eru sungin - við misjafna hrifningu annarra gesta hótelsins. Fjörið stendur fram eftir kvöldi en allir eru þó komnir í háttinn um miðnætti þar sem lúin bein eru hvíld fyrir átök næsta dags.

Það eru aðeins 11 dagar til brottfarar - þetta eiga eftir að verða langir dagar, svo mikil er tilhlökkunin hjá mér.


Landsfundir

Tveir íslenskir stjórnmálaflokkar halda landsfundi sína nú um helgina. Ég átti sæti á landsfundi Sjálfstæðisflokksins en taldi að tíma mínum væri að þessu sinni betur varið í að sinna konu og vinnu - svo má maður auðvitað ekki missa af þverpólitíska fótboltanum í íþróttahúsinu á laugardögum Wink Ég get þó að einhverju leyti fylgst með fundarstörfum hjá mínu fólki í gegnum beina útsendingu á netinu en þar er að vísu ekki hægt að fylgjast með nefndarstörfum en umræður í hinum ýmsu málefnanefndum eru ætíð fjörugar og skemmtilegar.

Ég leit yfir drög að ályktunum beggja landsfundanna og þar að margt gott að finna en þú ýmislegt slæmt líka. Það væri auðvelt að koma fram með gagnrýni á drögin en ég ætla að bíða með það þar til lokaafurðirnar koma frá landsfundunum.


Föstudagurinn þrettándi

Hjátrúarfullir einstaklingar eiga það til að óttast föstudaga sem bera upp á þrettánda dag mánaðarins. Slíkur dagur er einmitt í dag. Margir sýna sérstaka aðgát á þessum degi og hafa jafnvel heyrst sögur af fólki sem fer ekki út úr húsi á föstudaginn þrettánda. Ég er mátulega hjátrúarfullur og vona að óheppnin elti aðra en mig í dag.

Íslenska 103

Hvað ætli það séu margar stafsetningarvillur/málfræðivillur í þessari frétt sem birtist á Vísi.is fyrr í kvöld?

"Vísir, 12. apr. 2007 20:28

Eldur kom upp í bát

Kviknaði í bát suðvestur af Ryti við Ísafjarðardjúpi rétt um kvöldmataleitið í kvöld. Tveir menn voru í bátnum. Að sögn vaðstjóra á Ísafirði náðu mennirnir að slökkva eldinn, en báturinn varð vélvana og þurfti því að kalla á hjálp. Sædísin frá Bolungavík kom á staðin og er báturinn væntanlegur til hafnar í Bolungavík um klukkan hálf tíu. Upptök eldsins eru ókunn."

Ég átti hreinlega í erfiðleikum með að lesa mig í gegnum fréttina.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband