Ég á afmæli í dag

Það er komið sumar - samkvæmt dagatalinu. Þessi 31. afmælisdagur minn er þó ekkert sérstaklega sumarlegur, allt er orðið hvítt og norðaustanáttin í kaldara og hvassara lagi. Kuldalegt veðrið fékk mig til að kúra aðeins fram á morguninn en að lokum dreif ég mig á fætur til að geta tekist á við verkefni dagsins.

Afmælisdagurinn minn virðist alltaf hitta á annasaman tíma hjá mér, á skólaárunum var próflestur í hámarki í kringum 21. apríl en eftir að við tók nám í skóla lífsins hefur ætíð verið álagspunktur í vinnunni hjá mér á vorin. Það verður því líkt og áður lítið um hátíðarhöld hjá mér í tilefni afmælisdagsins. Á dagskránni í dag er þó fótbolti og matur hjá mömmu.

Ásgeir Þór á líka afmæli í dag, ég óska honum innilega til hamingju með fertugsafmælið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Til lukku með daginn elsku Baldur.  Ferlegt gamalmenni er hann Ásgeir Þór orðinn

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 21.4.2007 kl. 13:08

2 Smámynd: Vestfirðir

Til hamingu með afmælið.

Vestfirðir, 21.4.2007 kl. 13:09

3 Smámynd: Gunnar Þórðarson

Til hamingju með daginn Baldur Smári

Gunnar Þórðar 

Gunnar Þórðarson, 21.4.2007 kl. 15:23

4 Smámynd: Ingólfur H Þorleifsson

Til hamingju með daginn

Ingólfur H Þorleifsson, 21.4.2007 kl. 17:42

5 Smámynd: Magnús Már Einarsson

Til hamingju með daginn Baldur. Vonandi áttu góðan dag. 

Magnús Már Einarsson, 21.4.2007 kl. 18:27

6 Smámynd: Katrín

tilhamningju Baldur Smári með daginn og ef þú Ásgeir Þór skyldi kíkja hingað inn ´þá eru hamingjuóskir til handa þér 

Katrín, 21.4.2007 kl. 19:20

7 Smámynd: Jón Atli Magnússon

Til hamingju með daginn

Jón Atli Magnússon, 21.4.2007 kl. 20:07

8 identicon

Það er ljóst að ég lít ekki á dagatal leikskólans á hverjum degi. Þú komst í Liverpoolheimsókn og fótbolta með mér en afmæliskveðjan gleymdist - ég vona að dagurinn hafi þrátt fyrir þessa augljósu annmarka verið skemmtilegur. Til hamingju með daginn þinn í gær.....

Grímur (IP-tala skráð) 22.4.2007 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband