Blogg á bb.is

Á föstudaginn breytti bb.is um ham og ég verð að segja að ég er ánægður breytinguna, hún er til batnaðar. Eitt af því sem er nýtt á vefnum er yfirlit sérvalinna bloggsíða, svo er að handahófi valið eitt blogg til að prýða forsíðu bb.is og má segja að þar með bætist frjálsleg óábyrg skrif við hinar klassísku greinar sem birtast reglulega á bb.is. Einnig er nú hægt að setja inn blogg/athugasemdir við einstakar fréttir og greinar, það er eitthvað sem getur verið fróðlegt að fylgjast með hvernig verður notað í framtíðinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er mjög ánægð með þessa breytingu.  BB hefur alltaf verið í fararbroddi með svo margt.  En þeir hafa sýnt að þarna fara góðir fagmennog fylgjast með því sem er að gerast.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2007 kl. 17:25

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Velkominn í bloggvinahópinn minn og gaman að sjá þig

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 18.3.2007 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband