Innanbæjarkappakstur

Glugginn á skrifstofunni minni snýr að Aðalstræti í Bolungarvík þannig að ég verð var við margt sem gerist á þessari aðalgötu bæjarins. Í kvöld varð ég vitni að ofsaakstri tveggja ungra ökumanna sem voru í hreinum og klárum kappakstri eftir Aðalstrætinu. Óhætt er að segja að hraði beggja bílanna hafi verið yfir 100 km/klst og lögðu þeir undir sig báðar akreinar götunnar. Slíkur kappasktur er stórhættulegur og í mínum huga eiga þeir sem verða uppvísir að þess háttar brotum ekki skilið að hafa ökuréttindi - það hefði t.d. ekki þurft að spyrja að leikslokum ef að lítið barn hefði í gáleysi sínu elt bolta út á götuna....

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband