Fylgd

Komdu, litli ljúfur,
labbi, pabba stúfur,
látum draumsins dúfur
dvelja inni um sinn.
-- heiður er himinninn.
Blærinn faðmar bæinn,
býður út í daginn.
Komdu, kalli minn.

Göngum upp með ánni
inn hjá mosaflánni,
fram með gljúfragjánni
gegnum móans lyng,
-- heyrirðu hvað ég syng --
líkt og lambamóðir
leiti á fornar slóðir
innst í hlíðarhring.

Héðan sérðu hafið
hvítum ljóma vafið,
það á geymt og grafið
gull og perluskel,
ef þú veiðir vel.
En frammi á fjöllum háum
fjarri sævi bláum
sefur gamalt sel.

Glitrar grund og vangur,
glóir sund og drangur.
Litli ferðalangur
láttu vakna nú
þína tryggð og trú.
-- Lind í lautu streymir,
lyng á heiði dreymir,
-- þetta land átt þú.

Hér bjó afi og amma
eins og pabbi og mamma.
Eina ævi og skamma
eignast hver um sig.
-- stundum þröngan stig.
En þú átt að muna
alla tilveruna,
að þetta land á þig.

Ef að illar vættir
inn um myrkragættir
bjóða svikasættir
svo sem löngum ber
við í heimi hér,
þá er ei þörf að velja:
þú mátt aldrei selja
það úr hendi þér.

Göngum langar leiðir,
landið faðminn breiðir.
Allar götur greiðir
gamla landið mitt,
sýnir hjarta sitt.
Mundu, mömmu ljúfur,
mundu, pabba stúfur,
að þetta er landið þitt.

Guðmundur Böðvarsson

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú veist meiningu ljóðsins er það ekki?

Ort gegn veru hersins í landinu?

Gaman að sjá "hægri" skipta svona skemtilega um skoðun og verða vinstri sinnaður og vilja ekki álver og skemmdir á landinu sínu ólíkt sjálfstæðismönnum.

Eða á þetta að vera sneið til Evrópu sinna ?

aðdáandi ljóðsins (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 09:57

2 Smámynd: Bryndís G Friðgeirsdóttir

Einstaklega fallegt ljóð og það á enn við þó herinn sé farinn. Við erum þó enn í Nato og enn eru áform uppi á borðum um að fórna náttúruperlum undir virkjanir og selja útlendingum hundódýra orku fyrir stóriðju/álver meðan íslenskir bændur greiða orkurverð fyrir garðyrkjubú svo ekki sé nú talað um íslenskan smáiðnað og heimilin í landinu. Þetta ljóð á svo sannarlega við í dag eins og mörg önnur ljóð Guðmundar Böðvarssonar. Við vinstra fólk syngjum oft ljóðin hans á góðum stundum til að efla okkur og samherja okkar til dáða í baráttunni við auðvaldið.

Bryndís G Friðgeirsdóttir, 29.4.2009 kl. 13:52

3 identicon

hefur einhver annar en ég tekið eftir því að erindinu:

"Ef að illar vættir
inn um myrkragættir..."

Þessu er yfirleitt sleppt í söng  kóra undanfarið.  Ég var á landsfundi VG um daginn og þá var  barnakór úr Kópavoginum og söng frábærlega en erindinu var sleppt. 

Þetta er orðin venja , þessi hluti kvæðisins virðist orðin eitthvað tabú.  Eða er verið að hlífa krökkunum við "áróðri"?

gusig (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 01:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband