Föstudagur, 20. júlí 2007
Björgum Vestfjörðum
Þessa dagana fer her manna um landið undir því yfirskini að það ætli að bjarga Íslandi. Þar eru Vestfirðir væntanlega ekki undanskildir. Þess vegna vona ég að þessir aðilar ætli í raun að bjarga Íslandi en ekki aðeins að mótmæla álverum og orkuverum. Mér finnst eðlilegt að spyrja þetta fólk hvað það ætli að gera til að bjarga Vestfjörðum. Við vitum að sjávarþorpin á Vestfjörðum eiga verulega erfitt uppdráttar þessa dagana líkt og flest önnur smærri samfélög á Íslandi. Ef bjarga á Íslandi þá þarf um leið að bjarga þessum samfélögum, það liggur í hlutarins eðli. Í það minnsta ef við ætlum að halda landinu í byggð.
Hvernig skyldi samtök á borð við Saving Iceland ætla að bjarga Vestfjörðum? Kannski að trúðanámskeið verði bjargráð þeirra.
Athugasemdir
Ætla rétt svo að vona að ef það verður farið í þá aðgerð að í því felist ekki að reisa reikspúandi olíuhreinsunarstöð í þeirri náttúruperlu sem vestfirðir eru. Frekar að styrkja ferðamannaiðnaðinn, efla sprotafyrirtæki, flýta fyrir samgöngubótum á svæðinu, hefja útflutning á ferskum fiski með flugi frá Þingeyri og koma á háskólabæ á Ísafirði, væri frekar til í að sjá aðgerðir í þessum anda. Svo í kjölfar mikillar skerðingar á þorski verður ríkisstjórnin að reyna að laga gengi krónunnar en hún heldur bara áfram að styrkjast og styrkjast með skelfilegum afleiðingum fyrir útflutningsfyrirtæki í landinu og það gæti gert endanlega út af fyrir sjávarútvegsfyrirtæki á svæðinu.
Páll Guðmundur Ásgeirsson (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 18:17
Nei nei engin trúðanámskeið, þau eru hér í Mosó
.
Þeir gætu kannski haldið æfingabúðir fyrir ástarvikuna
.........
Dagný Kristinsdóttir, 23.7.2007 kl. 22:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.