Föstudagur, 20. júlí 2007
Golfhelgin mikla
Það er nóg um að vera í golfinu hér fyrir vestan um helgina. Kambsmótið víðfræga á Ísafirði er á morgun og golfmótið okkar hjá Endurskoðun Vestfjarða í Bolungarvík á sunnudag. Ég er að sjálfsögðu skráður til leiks á báðum stöðum og vænti góðrar spilamennsku um helgina.
Það sem af er sumri hef ég lítið látið sjá mig á golfvöllum landsins og er þar um að kenna (eða réttara sagt því að þakka) breytingum á fjölskylduhögum mínum en eins og margir vita þá gekk ég út fyrr á þessu ári og þarf nú að sinna konu og barni. Því hefur golfið eðlilega færst aftar á forgangslistann hjá mér.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.