Þriðjudagur, 26. júní 2007
Ný Bolungarvík?
Björgmundur segir í bloggi sínu að nú sé að myndast nýr byggðakjarni á Suðurnesjum sem mun fljótlega verða jafn stór og Bolungarvík. Þarna er fyrrum herstöð breytt í háskólaþorp og á nokkrum vikum ætla um 700-800 manns að setjast þar að. Þetta er að sjálfsögðu gott framtak en ég velti því fyrir mér hvort hægt væri að gera svipaða hluti annars staðar á landinu. "Gamla Bolungarvík" getur til dæmis auðveldlega bætt við sig 700-800 íbúum á næstu árum - hvort sem það væri í tengslum við uppbyggingu innan menntageirans eða annarra atvinnugreina.
Í frétt mbl.is um "Nýju Bolungarvík" segir auk þess að í þessu 700 til 800 manna samfélagi verði um 200 börn. Þessir íbúar þurfa alls kyns þjónustu á borð við leikskóla, grunnskóla, íþróttamiðstöðvar, tónlistarskóla, heilbrigðisþjónustu, verslanir og ýmsa persónulega þjónustu. Allir þessir innviðir eru nú þegar til staðar í sjávarþorpum á borð við "Gömlu Bolungarvík". Af hverju ekki að nýta sér það?
Athugasemdir
Opna Harvard einkaskóla með áherslu á doktorsnám í Umhverfisfræðum (Hafstraumar, Gróðarhúsaáhrif, bráðnun jökla, eldfjallafræði o.sv.fr.v.).
Er ekki haft eftir núverandi Rektors Keilis í "Nýju Bolungarvík" að eina vitið fyrir Vestfirðinga væri að stofna einkaskóla/sjálfseignaskóla á Háskólastigi svo hægt væri að sækja fé annað en bara til ríkisins, hann er nú aldeilis búinn að sanna það í "Nýju Bolungarvík".
Björgmundur Örn Guðmundsson, 29.6.2007 kl. 01:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.